I miss my camera phone.
2. maí 2010
I miss my camera phone.
I used to be a critic of high-tech phone owners. When my co-workers tried to boast about their new mobile and start listing off all of it’s features, I’d rudely cut them off and show them my 10 year old nokia and explain that it even sent sms messeges and had an alarm-clock function. One day, without any good reason I bought myself a modern phone. About 3 weeks later it was stolen from me.
During those three weeks, I found myself using the camera more than I would have anticipated. Whenever I saw something picture-worthy, I’d just reach into my pocket and take a picture. In fact the morning of the day that my camera was stolen, I took a beautiful picture of my baby son playing on the floor. The pictures on the phone was actually the first thing that I thought of when I realized my phone had been stolen.
Silfur Egils á ipod
20. apríl 2010
Það mætti endilega skella Silfur egils í podcast. Skemmtilegt væri að hlusta á silfrið í vinnunni, bílnum, osfrv.
WMV getur verið leiðinlega ósamvinnuþýtt í windows, hvað þá Xos, Linux eða í ipod.
Eldgos og rannsóknarskýrsla, ekkert annað að frétta…
20. apríl 2010
- Íbúðalánasjóður er að verða gjaldþrota
- Atvinnulausir námsmenn eiga hvorki rétt á atvinnuleysisbótum, né fjárhagsaðstoð
- Fólk hefur ennþá ekki efni á leigu / afborgunum ámeðan að það eru tóm hús útum ALLT
- Hiti og rafmagn fer að hækka í verði vegna erlendra lána og yfirveðsetningu eigna orku-”fyrirtækjanna”
- Fiskur sem átti að seljast ferskur til Evrópu er látinn úldna á Leifsstöð, á sama tíma og fólk bíður klukkutímum saman í biðröð til að betla mat.
Ámeðan að Equador hótar að ríkisvæða eignir olíufélaga þar í landi, hefur Steingrímur ekki kjark til þess að GERA neitt þjóðinni sinni í hag. Hvað er vinstri-sinnað við þennan mann? Hann vill endurreysa hagkerfi okkar með AGS skuldum og einkavæðingu bankana… aftur. Þetta hlýtur að vera misheppnaðasta og kjarklausasta vinstri-stjón allra tíma!
Hagkerfi munu falla þangað til að þau eru gerð sjálfbær.
Hjartans mál
20. apríl 2010
Kæra Rafiðnaðarsamband Íslands,
Ég hef unnið við rafvirkjun sem rafiðnarnemi síðan árið 2006. Þegar ég kom fyrst til Íslands í miðju góðærinu brá mér í brún við töxtunum í kjarasamning RSÍ. Snemma á árinu 2007 virtust flestir samstarfsbræður mínir (rafvirkjar og rafvirkjanemar) vera á þeirri skoðun að góðærið mundi einhverntíman fjara út. Maður þarf ekki að vera menntaður hagfræðingur til að skynja að það sem fer upp, kemur niður. Ég hélt að það væri líka almenn vitund að góð vinnubrögð stéttarfélags væri að ná sem bestum kjarasamningum á meðan á góðæri stendur. En ég virðist hafa setið á þessari visku, einn, innan RSÍ.
Í dag fór ég í atvinnuviðtal hjá rafverktaka. Síðast liðna haust settist ég á skólabekk til að halda áfram með rafvirkjanámið. Af þeim tuttugu rafverktökum sem ég sótti um sumarvinnu hjá, var mér boðið í eitt viðtal. Þegar komið var að því að ræða um kaup, dróg meistarinn upp síðustu útgefnu kaupskrá. Á þeirri stundu skammaðist ég mín fyrir að hafa verið óvirkur meðlimur RSÍ, alveg frá inngöngu. Það var eins og mér væri sýnd einkunnargjöf stétt okkar í kjarasamningum á síðustu árum; Fall.
Velferðakerfið, eins og það stendur um þessar mundir, hjálpar ekki heldur samningsstöðu nema í atvinnuleit. Samkvæmt forsvarsmönnum vinnumálastofnunarinnar og félagskerfi Reykjanesbæjar, eiga nemendur hvorki rétt á atvinnuleysisbótum, né framfærslustyrkjum milli anna. Starfsmaður sveitarfélagsins benti mér á að betla hjá þjóðkirkjunni sem úrræði ef ég skildi ekki finna sumarstarf. Þetta er óraunveruleg staða sem blasir við mér og eflaust einhverjum öðrum. En ég get sjálfum mér um kennt fyrir að hafa ekki synnt skildum mínum sem meðlimur RSÍ. Þannig hef ég brugðist stéttinni minni, sjálfum mér, og börnunum mínum þremur.
Á vefsíðunni https://www.rafis.is er erfitt að finna upplýsingar um það hvernig maður getur tekið þátt í uppbyggingu stéttarfélagsins, kostningum, og umræðu.
- Hvernig get ég tekið þátt í uppbyggingu og viðhaldi stéttarfélagsins?
- Hvar og hvenær get ég mætt á félagsfundi?
- Er rafrænn vettvangur umræðna sem ég get tekið þátt í?
Kveðja,
Davíð James Róbertsson
Alþingi
16. mars 2010
VinstriGænir gegna fatafækkunar- og kynlífseftirlitinu,
Samfylkingingarmenn fara í vínsmökkun og bakpokaferðalag um evrópu,
Framsókn fara í réttirnar,
Borgarahreyfingin og Hreyfing borgaranna hreyfa sig í borginni.
Sjálfstæðismenn meiga fara til helvítis, mín vegna.
